Klukkan 09:00 – 10:30 í Gullteig
Umsjónarmaður: Anna Guðrún Edvardsdóttir, Háskólinn að Hólum
Málstofustjóri: Þorleifur Eiríksson, RORUM


Gríðarlegur vöxtur hefur orðið á laxeldi í sjókvíum á Íslandi. Fjárfesting í greininni er ævintýraleg; í kvíum og lífmassa og einnig í seiðaeldi. Útflutningsverðmæti eldislax í fyrra var 27,5 milljarðar króna og má gera ráð fyrir töluverðri aukningu næstu árin. Í málstofunni munu fyrirtækin kynna stöðu og framtíðarsýn fyrirtækja sinna og beina sjónum sínum að mikilvægi greinarinnar í tengslum við matvælaöryggi heimsins.
Erindi þessarar málstofu:
- Laxar/ Ice Fish FarmKlukkan 09:30 Jens Garðar Helgason, Deputy CEO Laxar
- HábrúnKlukkan 09:50 í Gullteig Davíð Kjartansson, framkvæmdastjóri Í fyrirlestrinum verður saga Hábrúnar sögð í stórum dráttum og forvera þess, upphafið í fiskeldi fyrirtækisins, núverandi staða og framtíðarsýn.
- ArnarlaxGROWING WITH RURAL COMMUNITIES Klukkan 12:30 í Gullteig Jón Garðar Jörundsson, Chief Business Development Officer
- HáafellKlukkan 09:10 í Gullteig Gauti Geirsson, framkvæmdastjóri Nýr kafli í atvinnusögu við Ísafjarðardjúp hófst í vor (2022) þegar laxeldi hófst á ný eftir um 30 ára hlé. Tækni og þekkingu hefur á þessum tíma fleygt fram á sama tíma og auknar kröfur eru gerðar til greinarinnar, bæði frá eldisfyrirtækjunum sjálfum og samfélögunum sem þau starfa… Read more: Háafell
- Arctic Fish – sjóeldiKlukkan 09:00 í Gullteig Stein Ove Tveiten, CEO Arctic Fish Vöxtur fiskeldis á Íslandi hefur verið skarpur. Fram að þessu hefur áhersla verið að á sækja ný leyfi og hefja stöðugan rekstur sem býður upp á lax allar vikur ársins. Fyrsta fasa í þeirri vegferð er að mestu lokið. En hvað svo. Hvernig verður fiskeldi… Read more: Arctic Fish – sjóeldi