Strandbúnaður 2017 – Dagskrádrög

Tilgangur félagsins er að stuðla að faglegri og fræðandi umfjöllun um strandbúnað og styðja þannig við menntun, rannsóknir, þróun og stefnumótun greinarinnar. Félagið er ekki hagsmunasamtök einstakra hópa og vinnur ekki að hagsmunagæslu.

Hvað er Strandbúnaður?

Strandbúnaður er samheiti yfir atvinnugreinar sem tengjast nýtingu land- og/eða sjávargæða í og við strandlengju landsins, hvort sem um ræktun eða eldi er að ræða.

Ráðstefna

Strandbúnaður, ráðstefna fyrir fiskeldi, skeldýra- og þörungarækt. Fyrsta verkefni Strandbúnaðar er að halda ráðstefnu á Grand Hótel Reykjavík dagana 13. – 14. mars 2017.  Á Strandbúnaði 2017 verða eftirtaldar málstofur:

  • Strandbúnaður á Íslandi: Staða, framtíðarsýn og skipulag
  • Framtíð bleikjueldis á Íslandi
  • Þörungarækt og nýting þörunga
  • Ræktun bláskeljar
  • Menntun í strandbúnaði
  • Framtíð laxeldis og umhverfismál
  • Vaxtarsprotar strandbúnaðar
  • Samantekt úr málstofum

Samtals er gert ráð fyrir að flutt verði um 40 erindi á Strandbúnaði 2017, fyrstu ráðstefnu vettvangsins. Hægt er að sækja dagskrádrög HÉR.

Styrktaraðilar

Ráðstefnan verður fjármögnuð með þátttökugjaldi, styrkjum og ekki minnst sjálfboðavinnu.  Til að halda ráðstefnugjöldum í hófi er mikilvægt að fá sem flesta styrktaraðila.  Eimskip og Arion banki hafa ákveðið að gerast styrktaraðilar – Við leitum eftir fleiri styrktaraðilum.