Sjórkvíaeldi í íslenskum brælum – áhrif á helbrigði og velferð

Klukkan 14:15 í Setur

Sigríður Gísladóttir, Blár akur

Þær áhættur sem takast þarf á við í fiskeldi eru flóknar og þekking og upplýsingar er af skornum skammti um marga áhættuþætti. Einn af áhættuþáttunum er veður og sjólag. Eftir því sem reynsla hefur komist á eldi laxfiska í íslenskum fjörðum, fer að teiknast upp mynd af því hvaða áhættuþættir eru stærstir hér á landi. Í erindinu verður fjallað um veður og sjólag og áhrif þess á heilbrigði og velferð og mögulegar leiðir til að draga úr áhættu.