Er laxaskítur úr eldi á við skólpmengun frá milljónaborg?

Klukkan 15:30 – Gullteigur Þorleifur Eiríksson, framkvæmdastjóri RORUM Umræða þar sem ber mikið ber á mýtum og staðleysum er vandamál í allri alvarlegri umræðu. Gott dæmi um þannig umræðu er þegar lífrænum leifum frá fiskeldi er lýst sem skólpi eins og kemur frá bæjum og borgum en ekki borið saman við eðlilegan fjóshaug frá kúabúi. […]
Er lyfjanotkun í eldi óhóflega mikil?

Klukkan 15:15 – Gullteigur Gunnar Davíðsson, deildarstjóri Fylkisstjórn Trøms og Finnmark Allir segjast vilja málefnalega umræðu, og það er augljóst að málefnaleg umræða um laxeldi og umhverfis- og samfélagsleg áhrif er nauðsynleg til þess að greinin nái að þróast eðlilega. Fullyrðing um óhóflega lyfjanotkun í eldi er algeng og ein sú rótgrónasta sem komið hefur […]
Mýtur og áhrif á umræðu um atvinnuuppbyggingu

Klukkan 15:00 – Gullteigur Guðrún Anna Finnbogadóttir, Vestfjarðastofu Við búum í flóknum heimi og þurfum að taka tillit til margra þátta til að geta tekið upplýsta ákvörðun um hvað okkur finnst og hvert við eigum að stefna. Umræðan um fiskeldi hefur verið mjög kröftug annarsvegar frá þeim sem eru á móti og hins vegar frá […]
Snyrtivörur úr þörungum

Klukkan 14:00 – Hvammur Eydís Mary Jónsdóttir, SETO Fjallað um gerð snyrtivara úr ræktuðum þörungum.
Jarðhitagarður Orku Náttúrunnar

Klukkan 13:45 – Hvammur Hjálmar Helgi Rögnvaldsson, rafmagnsverkfræðingur Í Jarðhitagarði Orku náttúrunnar gefst færi á að nýta betur auðlindastrauma frá Hellisheiðarvirkjun og skapa þannig aukin verðmæti og stuðla að nýsköpun. Árið 2019 var mikilvægum áfanga náð þegar fyrsta fyrirtækið, VAXA Technologies, hóf starfsemi í Jarðhitagarðinum og hefur samstarfið verið báðum aðilum til góðs. VAXA Technologies […]
Framtíð þörungaræktar á Íslandi

Klukkan 13:30 – Hvammur Gunnar Ólafsson, Djúpið Þörungarækt er einn af þeim fjölmörgu og spennandi möguleikum sem fyrir okkur liggja. Djúpið hefur unanfarin ár unnið að kortlagningu möguleika innan þörungarræktar og eru hér kynntir nokkrir.
Energy to food

Klukkan 13:15 – Hvammur Kristinn Hafliðason, framkvæmdastjóri VAXA Technologies Mönnum fjölgar á áður óþekktum hraða og ráðgert er að fólksfjöldi nálgist 10 milljarða árið 2050. Í ofanálag er gert ráð fyrir því að hvert mannsbarn borði rúmlega þrisvar sinnum meira af mat en árið 1960. Af þessum sökum þarf mannkynið að framleiða meiri fæðu á […]
Þörungaverksmiðjan hf., sjálfbær nýting á náttúruauðlindum í 40 ár

Klukkan 13:00 – Hvammur Finnur Árnason, framkvæmdastjóri Þörungaverksmiðjunnar h.f. Þörungaverksmiðjan hóf starfsemi á árinu 1986 og hefur síðan þá nýtt þang og þara í og við Breiðafjörð. Reksturinn er fjölbreytt blanda af útgerð, iðnaði og landbúnaði og á ýmsu hefur gengið í gegnum árin. Reksturinn byggir meðal annars á nýtingu gróðurs í fjörum og sjó. […]
Viðhorf atvinnugreinarinnar til menntunar í fiskeldi

Klukkan 13:45 – Gullteigur Jens Garðar Helgason, framkvæmdastjóri Laxar Fiskeldi ehf Í hratt vaxandi atvinnugrein er þörf fyrir menntað starfsfólk. Hvernig byggjum við upp menntun og þekkingu í greininni?
Kynning á BRIDGES – samstarfsverkefni um uppbyggingu náms í fiskeldi

Klukkan 13:30 – Gullteigur Ástríður Einarsdóttir, verkefnastjóri Háskólanum á Hólum Í erindinu verður verkefnið Bridges kynnt, en verkefnið er alþjóðlegt samstarfsverkefni styrkt af Erasmus +. Markmið verkefnisins er að efla kennslu í fiskeldi með því að þróa kennsluaðferðir og kennsluefni. Sérstaklega verður unnið að því að tengja saman kennslu í fiskeldi á lægri stigum við […]