Klukkan 13:20-14:50 – Gullteigur
Umsjónarmaður málstofu : Elvar Traustason
Málstofustjóri: Kristín Hálfdánsdóttir
Umsóknir og leyfisveitingar fyrir sjókvíaeldi er mörgum leikmanninum óskiljanleg. Málstofunni er ætlað að útskýra feril umsókna og hvernig leyfisveitingar eru framkvæmdar í dag og hver er framtíðarsýn í þeim málum. Hvernig er staðið að strandveiðiskipulagi sem grundvöllur fyrir staðarvali fyrir sjókvíaeldi. Hver er aðkoma ríkisins að leyfisveitingum og hvert er markmið stjórnvalda til framtíðar? Leyfisveitingar eru grunnur að uppbygginu á sjókvíaeldi og hafa því mikil áhrif á aðliggjandi sveitarfélög, umhverfislega, félagslega og efnahagslega, og getur haft mikil áhrif á búsetu á Vestfjörðum og Austurlandi.
Erindi þessarar málstofu:
- Leyfisveitingar til sjókvíaeldisKlukkan 13:20-14:50 – Gullteigur Umsjónarmaður málstofu : Elvar TraustasonMálstofustjóri: Kristín Hálfdánsdóttir Umsóknir og leyfisveitingar fyrir sjókvíaeldi er mörgum leikmanninum óskiljanleg. Málstofunni er ætlað að útskýra feril umsókna og hvernig leyfisveitingar eru framkvæmdar í dag og hver er framtíðarsýn í þeim málum. Hvernig er staðið að strandveiðiskipulagi sem grundvöllur fyrir staðarvali fyrir sjókvíaeldi. Hver er aðkoma… Read more: Leyfisveitingar til sjókvíaeldis
- Leyfisveitingar fyrir sjókvíaeldi viðhorf fulltrúa sveitarfélagsKlukkan 14:20 – Gullteigur Rebekka Hilmarsdóttir, bæjarstjóri Vesturbyggð Leyfisveitingar fyrir sjókvíaeldi er grunnurinn að uppbyggingu á fiskeldi. Fjallað verður um aðkomu sveitarfélaga að leyfisveitingum í fiskeldi og áhrif þess fyrir sveitarfélag þegar leyfi fyrir sjókvíaeldi eru t.d. felld úr gildi. Viðhorf samfélags til fiskeldis og áhrif þess umhverfislega, félagslega og efnahagslega þar sem atvinnulíf hefur… Read more: Leyfisveitingar fyrir sjókvíaeldi viðhorf fulltrúa sveitarfélags
- Stjórnsýsla leyfisveitinga út frá sjónarhóli fiskeldisbóndansKlukkan 14:05 – Gullteigur Sigurður Pétursson, laxeldisbóndi Aðeins kíkt í baksýnisspegill leyfisveitinga en áhersla á lýsingu á stöðunni í dag og hugmyndir um hvernig mætti bæta samvinnu og skilvirkari uppbyggingu leyfismála.
- Stjórnsýsla leyfisveitingaKlukkan 13:50 – Gullteigur Jón Þrándur Stefánsson, Atvinnu- og nýsköpunarráðuneyti (ARN) Í erindinu verður farið yfir þau helstu ákvæði sem gilda um leyfisveitingar í fiskeldi, þ.m.t. rætt um breytingar á lögum og reglum og hlutverk stofnana við framkvæmd og eftirlit. Að auki verður stuttlega rætt um þróun regluverksins og áskoranir sem því tengjast.
- Strandsvæðaskipulag út frá sjónarhóli sveitarfélagaKlukkan 13:35 – Gullteigur Aðalsteinn Óskarsson, sviðstjóri strandsvæðiskipulags Vestfjarðastofa Sveitarfélögin eru málsvari nærsamfélagsins og gera kröfu um að koma að ákvörðunum um verndun og eða sjálfbæra nýtingu auðlinda,. Aðalskipulag sveitarfélaga er tæki sveitarfélaga til að setja framtíðarsýn og stefnumörkun í þessum efnum. Líkt og á landi eru auðlindir strandsvæðisins takmarkaðar og krafa sveitarfélaga er að… Read more: Strandsvæðaskipulag út frá sjónarhóli sveitarfélaga
- Um gerð strandsvæðaskipulags á Austfjörðum og VestfjörðumKlukkan 13:20 – Gullteigur Ester Anna Ármansdóttir, sérfræðingur í skipulagi haf- og strandsvæða, Skipulagsstofnun Strandsvæðisskipulag er skipulagsáætlun fyrir afmarkað svæði á fjörðum og flóum utan staðarmarka sveitarfélaga þar sem sett er fram stefna og ákvarðanir um framtíðarnýtingu og vernd svæðisins. Unnið er að gerð strandsvæðisskipulags fyrir Austfirði og Vestfirði. Svæðisráð skipað fulltrúum ríkis og sveitarfélaga… Read more: Um gerð strandsvæðaskipulags á Austfjörðum og Vestfjörðum